SF.is Stækka letur Minnka letur Hafa samband Prenta Veftré English

FF
LF
Kynning á vottun ábyrgra fiskveiða Íslendinga
Mánudagur, 01. Mar 2010

responsible fisheries 001Skipaður hefur verið sjö manna starfshópur til að undirbúa kynningu á vottuðu merki sem staðfestir ábyrgar fiskveiðar Íslendinga.  Hópurinn var skipaður á fundi með forsvarsmönnum fyrirtækja í sjávarútvegi, sem Fiskifélag Íslands boðaði til þann 25. febrúar. 

Undanfarið ár hefur Fiskifélagið gefið seljendum íslenskra sjávarafurða kost á að merkja vörur sínar með íslensku upprunamerki (Iceland Responsible Fisheries).  Á vegum félagsins hefur nú verið undirbúin ný útgáfa merkisins, sem felur í sér vottun óháðs, faggilts aðila.  Írsku vottunarstofunni Global Trust Certification Ltd. hefur verið falið að setja upp vottunarkerfi, byggt á tæknilegum kröfum sem Fiskifélagið hefur þróað.  Kröfurnar eru samkvæmt leiðbeiningum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). 

Undirbúningur vottunar er langt kominn.  Áætlað er að vottun fyrstu fiskistofnanna verði lokið á þessu ári.  Verkefni starfshópsins er að undirbúa kynningu hins vottaða merkis á helstu mörkuðum íslensks sjávarfangs. 

Frekari upplýsingar: Finnur Garðarsson, sími 5910308/8962400, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 
Fundur vegna markaðsstarfs á merki um vottun ábyrgra veiða
Fimmtudagur, 18. Feb 2010

Þar sem nú styttist í að vottunarferli fyrir þorskstofninn við Ísland hefjist, er hér með efnt til fundar meðal félagsmanna SF og LÍÚ vegna kynningar- og markaðsmála verkefnisins um vottun ábyrgra veiða Íslendinga. Fundurinn verður haldinn í Reykjavík fimmtudaginn 25. febrúar kl 10-12

Dagskrá:
1. Viðtökur upprunamerkisins Iceland Responsible Fisheries
2. Staða vottunarverkefnis
3. Skipulag markaðsstarfs
4. Önnur mál
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á póstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. sem fyrst.

 
Ný heimasíða hjá SF
Miðvikudagur, 17. Feb 2010
Í árslok 2009 var tekin ákvörðun um að endurgera heimasíðu SF og klæða hana í nýjan búning. Búið er að uppfæra og  bæta við ýmsum upplýsingum er varða  ýmsar tölulegar upplýsingar í fiskvinnslu og sjávarútvegi. Bragi Bergsveinsson, tæknifræðingur hjá SF hefur haft umsjón með verkinu og annast úrvinnslu upplýsinga. Hugbúnaðarfyrirtækið Go.is internetlausnir tók að sér að endurgera og uppfæra nýju heimasíðuna sem birtist okkur hér í fyrsta skipti.