|
Stofnfundur Samtaka fiskvinnslustöðva var haldinn í húsakynnum VSÍ, Garðastræti 41, 22. nóvember 1974. Þar var Barða Friðrikssyni, Huxley Ólafssyni og Jóni Páli Halldórssyni falið að endurskoða lagfrumvarp sem lagt var fram á stofnfundinum fyrir framhaldsstofnfund sem haldinn yrði síðar.
Framhaldsstofnfundurinn var haldinn 13. febrúar 1975 og þar var fyrsta stjórn samtakanna kosin.
Markmið samtakanna er að sameina í ein hagsmunasamtök öll fyrirtæki sem vinna að framleiðslu og/eða sölu sjávarafurða og vera málsvari þeirra út á við.
Þau skulu koma á framfæri við stjórnvöld og almenning afstöðu samtakanna til þeirra mála er varða hagsmuni félagsmanna og fylgja þeim fram og þau skulu jafnframt tryggja að réttur félagsmanna sé ekki fyrir borð borinn.
Félagsmenn SF koma úr öllum greinum fiskvinnslu, svo sem frystingu, saltfiskverkun, síldarsöltun, mjöl- og lýsisvinnslu, rækju- og skelvinnslu auk fiskmarkaða og söluaðila sjávarafurða.
Smelliðá samþykktir SFhér til hliðar.
|