|
Ráðningar- og kauptryggingarsamningar |
|
Ráðningar- og kauptryggingarsamningur fiskvinnslufólks er gerður á einu og sama eyðublaðinu. Skal það nú gert eigi síðar en eftir tveggja mánaða starf hjá fyrirtækinu.
Eyðublað fyrir ráðningar- og kauptryggingarsamning í pdf-sniði er hægt að ná í hér. Eyðublaðið er tvískipt, efri hlutinn er kauptryggingarsamningur og neðri hlutinn er ráðningarsamningur. Eftir útfyllingu og undirskrift beggja aðila , skal taka eitt ljóstir til afhendingar starfsmanni. Síðan skal taka tvö ljósrit af kauptryggingarhlutanum, annað eintakið skal senda til viðkomandi verkalýðsfélags og hitt skal senda Vinnumálastofnun á Norðurlandi vestra til staðfestingar á kauptryggingu starfsmannsins.
Um ráðningarsamninga annarra starfsmanna en fiskvinnslufólks sjá Vinnumarkaðsvef Samtaka atvinnulífsins sem aðeins er opinn fyrir félagsmenn.
Þá hafa Samtök fiskvinnslustöðva gefið út bæklinginn "Kauptryggingarsamningar fiskvinnslufólks og greiðslur atvinnuleysistryggingasjóðs til fiskvinnslufyrirtækja", en í honum er að finna skýringar við ákvæði 18.4 í kjarasamningi verkafólks. Í bæklingnum er að finna ýmsar leiðbeiningar varðandi greiðslur bóta til fiskvinnslufyrirtækja og sýnishorn af eyðublöðum sem koma að gagni. Kauptryggingarbæklinginn má ná í hér.
|