|
Landsmennt, starfsmenntun Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni. Aðildarfélögin eru 17 og er þar um að ræða stéttarfélög innan Starfsgreinasambands Íslands. www.landsmennt.is
Helstu verkefni Landsmenntar eru: að sinna stuðningsverkefnum og þróunar-og hvatningaraðgerðum í starfsmenntun. Sjóðnum er ætlað að styrkja rekstur námskeiða og stuðla að nýjungum í námsefnisgerð ásamt því að veita einstaklingum, verkalýðsfélögum og fyrirtækjum beina styrki vegna sí-og endurmenntunar.
Styrkir: Einstaklingar sækja um styrki á þar til gerðum eyðublöðum til viðkomandi stéttarfélags sem sér um afgreiðslu þeirra í umboði Landsmenntar.
Fyrirtæki, stéttarfélög og eða fræðsluaðilar sækja um styrki til stjórnar Landsmenntar með því að senda bréf þar sem fram koma helstu upplýsingar vegna viðkomandi fræðsluverkefnis
Starfsafl - starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins og Flóabandalagsins varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun ófaglærðra. Símenntun starfsmanna er lykill fyrirtækja að betra starfsumhverfi, aukinni framleiðni og styrkir samkeppnisstöðu þeirra. Fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins geta sótt um styrk til að vinna sérstök starfsmenntaverkefni sem hafa fræðslu að markmiði. www.starfsafl.is
Markmið Starfsafls: · Hafa frumkvæði að þróunarverkefnum í starfsmenntun. · Leggja áherslu á kynningar-og hvatningarstarf er tengist starfsmenntun. Þannig verði stuðlað að aukinni starfsmenntun í íslensku atvinnulífi fyrir ófaglærða starfsmenn. · Kanna þörf atvinnulífsins fyrir starfsmenntun ófaglærðs verkafólks. · Leita eftir viðræðum við stjórnvöld um fyrirkomulag fullorðinsfræðslu.
Styrkja: · Nýjungar í námsefnisgerð · Endurskoðun námsefnis · Rekstur námskeiða · Einstaklinga og fyrirtæki vegna starfsmenntunar samkvæmt nánari reglum stjórnar
Starfsmenntasjóðs Samtaka atvinnulífsins og Verkstjórasambands Íslands Markmið sjóðsins er að stuðla að því að starfandi verkstjórum bjóðist heilstæð grunn- og endurmenntun sem uppfyllir þekkingarkröfur sem verkstjórar þurfa að búa yfir á hverjum tíma. www.vssi.is
· Þessar kröfur eru skilgreindar í Reglum til að meta styrkhæfni námsframboðs þar sem taldar eru upp þær hæfnikröfur sem lagðar verða til grundvallar þegar úrskurðað er hvort námskeið eru styrkhæf. Samkvæmt vinnureglum sem stjórn sjóðsins hefur samþykkt um veitingu námsstuðnings skal umsækjandi kynna sér fyrirfram hvort námskeið sem hann hefur hug á að sækja sé styrkhæft. Í þessum reglum er einnig getið um hverjir eiga rétt á styrk, hámark kostnaðar sem sjóðurinn greiðir fyrir þátttöku á námskeiðum og fleiri atriði. · Þeim sem hyggjast sækja um styrk úr sjóðnum er bent á að kynna sér reglugerð sjóðsins og sækja um á sérstöku eyðublaði.
|