SF.is Stækka letur Minnka letur Hafa samband Prenta Veftré English

FF
LF
Kjaramál

Launataxtar fiskvinnslufólks

Launahækkun 1. júní 2010      
      
Launahækkanir 1. júní 2010 eru samkvæmt samkomulagi milli SA og samninganefndar ASÍ frá 25. júní 2009  um breytingar á kjarasamningum milli aðildarfélaga ASÍ og SA gerðum 17. febrúar 2008 og síðar. 
Þær launabreytingar sem koma til framkvæmda eru eftirfarandi:

     
1. Almennir kauptaxtar verkafólks og afgreiðslufólks hækka um 6.500 kr. og iðnaðarmanna um 10.500 kr. á mánuði.        
   
2. Almenn launahækkun er 2,5%. Hækki laun meira vegna sérstakrar hækkunar kauptaxta gildir sú hækkun. Reiknitala í hóplaunakerfi (bónusinn), ákvæðisvinnutaxtar og kostnaðarliðir hækka um 2,5%. (Þetta gildir þó ekki um kostnaðarliði sem fylgja vísitölu neysluverðs eða byggingarvísitölu