SF.is Stækka letur Minnka letur Hafa samband Prenta Veftré English

FF
LF
Fréttir
Sáttanefnd skilar af sér lokaskýrslu til ráðherra
Miðvikudagur, 08. Sep 2010

Sáttnefnd hagsmunaðila í sjávarútvegi, þingflokka ofl.  um endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða skilaði lokaskýrslu og tillögum til sjávarútvegsráðherra í gær.

Starfshópurinn náði víðtækri sátt um  tvö mikilvægustu málin.
-Í fyrsta lagi að fara svokallaða samningaleið er varðar samninga við sjávarútvegsfyrirtæki  um langtímanýtingu aflaheimilda og endurúthlutun, þó svo að einstaka nefndarmenn hafi fyrirvara um ákveðin atriði.
-Í annan stað var einróma niðurstaða að mæla með því að áfram verði byggt á aflamarkskerfi við stjórn fiskveiða.

Það er mjög mikilvægt fyrir langt og strangt nefndarstarf að það skilaði að lokum þeirri niðurstöðu að hópurinn náði saman um þessi tvö grundvallaratriði við stjórn fiskveiða, eins og segir í bókun fulltrúa SF á lokafundi sáttanefndar 6. september sl.  sem fylgir með þessari frétt.

Lokaskýrslu sáttanefndar ásamt bókunum og örðum fylgikjölum  er að finna á http://www.sjavarutvegsraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/10194

 
Sjávarútvegsstefna 6.-7. sept. 2010
Mánudagur, 23. Ágú 2010

Þann 6.-7. september 2010 verður haldin Sjávarútvegsráðstefna á Grand Hótel í Reykjavík. Hugmyndin er að skapa samskiptavettvang allra þeirra sem koma að sjávarútvegi á Íslandi.

 Sjávarútvegsráðstefnan ehf. sem sér um ráðstefnuna er opið félag sem allir geta gerst hluthafar, sjá nánar á vefsíðu félagsins www.sjavarutvegsradstefnan.is en þar er einnig hægt er að sækja dagskrá og aðrar upplýsingar.
Skráning fer fram á vefnum http://frontpage.simnet.is/ipg/sjavarreg.asp

 
Sumarlokun skrifstofu SF 2010
Föstudagur, 09. Júl 2010
Skrifstofa SF lokar mánudaginn 19. júlí vegna sumarleyfa og stendur yfir í tvær vikur. Skrifstofan opnar svo aftur þriðudaginn 3. ágúst.
Meðan á sumarlokun stendur verður hægt að hafa samband við Arnar Sigurmundsson form. SF í síma 822 0351 eða á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
 
Mismunandi tollar á makríl til ESB landa
Fimmtudagur, 24. Jún 2010
Samkvæmt upplýsingum frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu þá er 7,5% tollur á frystum makrílsamflökum (butterflies/flaps) en áður hefur komið fram að fryst makrílflök beri 0% toll  inn á ESB lönd skv. fréttatilkynningu nr 38/2010 frá ráðuneytinu.
Frystur makríll tekur á sig 20% toll hvort heldur hann sé heill/hausaður og slógdreginn og niðursoðinn makríll tekur á sig 25% toll inn til ESB.
Framleiðendum er bennt á að hafa þetta í huga og kanna tollamálin vel áður en  vinnsla hefst.
 
Aðalfundur SF verður haldinn 24. september nk.
Mánudagur, 14. Jún 2010

Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva verður haldinn föstudaginn 24. september nk. að Grand Hótel  við Sigtún í Reykjavík.

Ráðgert er að fundurinn hefjist með venjulegum aðalfundarstörfum kl. 11.00 og er áætlað að fundinum ljúki um kl. 16.00.  Nánari dagskra  verður kynnt þegar nær dregur fundinum.

 
Fryst makrílflök til ESB eru tollfrjáls
Mánudagur, 14. Jún 2010

Við yfirferð á markaðsaðgangi fyrir makríl til Evrópusambandsins (ESB) uppgötvaðist villa í tollakerfi ESB varðandi frosin makrílflök. Samkvæmt EES-samningnum og fríverslunarsamningi Íslands og ESB frá árinu 1972 skal útflutningur á frosnum fiskflökum, af öðrum tegundum en ferskvatnsfiskum vera tollfrjáls. ESB hefur leiðrétt villuna afturvirkt frá 1. janúar 2010 og er því útflutningur á frystum makrílflökum frá Íslandi til ESB tollfrjáls. Ef fyrirtæki hafa flutt fryst makrílflök með tolli til ESB fyrir 1. janúar 2010 er viðkomandi aðilum bent á að hafa samband við utanríkisráðuneytið.

 
Kynning á vottun ábyrgra fiskveiða Íslendinga
Mánudagur, 01. Mar 2010

responsible fisheries 001Skipaður hefur verið sjö manna starfshópur til að undirbúa kynningu á vottuðu merki sem staðfestir ábyrgar fiskveiðar Íslendinga.  Hópurinn var skipaður á fundi með forsvarsmönnum fyrirtækja í sjávarútvegi, sem Fiskifélag Íslands boðaði til þann 25. febrúar. 

Undanfarið ár hefur Fiskifélagið gefið seljendum íslenskra sjávarafurða kost á að merkja vörur sínar með íslensku upprunamerki (Iceland Responsible Fisheries).  Á vegum félagsins hefur nú verið undirbúin ný útgáfa merkisins, sem felur í sér vottun óháðs, faggilts aðila.  Írsku vottunarstofunni Global Trust Certification Ltd. hefur verið falið að setja upp vottunarkerfi, byggt á tæknilegum kröfum sem Fiskifélagið hefur þróað.  Kröfurnar eru samkvæmt leiðbeiningum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). 

Undirbúningur vottunar er langt kominn.  Áætlað er að vottun fyrstu fiskistofnanna verði lokið á þessu ári.  Verkefni starfshópsins er að undirbúa kynningu hins vottaða merkis á helstu mörkuðum íslensks sjávarfangs. 

Frekari upplýsingar: Finnur Garðarsson, sími 5910308/8962400, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 
Fundur vegna markaðsstarfs á merki um vottun ábyrgra veiða
Fimmtudagur, 18. Feb 2010

Þar sem nú styttist í að vottunarferli fyrir þorskstofninn við Ísland hefjist, er hér með efnt til fundar meðal félagsmanna SF og LÍÚ vegna kynningar- og markaðsmála verkefnisins um vottun ábyrgra veiða Íslendinga. Fundurinn verður haldinn í Reykjavík fimmtudaginn 25. febrúar kl 10-12

Dagskrá:
1. Viðtökur upprunamerkisins Iceland Responsible Fisheries
2. Staða vottunarverkefnis
3. Skipulag markaðsstarfs
4. Önnur mál
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á póstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. sem fyrst.

 
Ný heimasíða hjá SF
Miðvikudagur, 17. Feb 2010
Í árslok 2009 var tekin ákvörðun um að endurgera heimasíðu SF og klæða hana í nýjan búning. Búið er að uppfæra og  bæta við ýmsum upplýsingum er varða  ýmsar tölulegar upplýsingar í fiskvinnslu og sjávarútvegi. Bragi Bergsveinsson, tæknifræðingur hjá SF hefur haft umsjón með verkinu og annast úrvinnslu upplýsinga. Hugbúnaðarfyrirtækið Go.is internetlausnir tók að sér að endurgera og uppfæra nýju heimasíðuna sem birtist okkur hér í fyrsta skipti.
 
Endurskoðunar- og sáttanefnd í sjálfheldu
Mánudagur, 15. Feb 2010

Við gerð stöðugleikasáttmála ríkisstjórnarinnar, sveitarfélaga og samtaka á vinnumarkaði 25.  júní 2009  var sjávarútvegsráðherra falið að kalla eftir tilnefningum í   endurskoðunar- og sáttanefnd um fiskveiðistjórnunarkerfið.  Boðuð fyrningarleið stjórnarflokkanna með innköllun veiðiheimilda hafði  mætt mikilli andstöðu í sjávarútvegi og almennt í þjóðfelaginu.

Lesa meira...
 
Kynningarfundur um nýja matvælalöggjöf fyrir fiskiðnaðinn
Föstudagur, 05. Feb 2010
11. febrúar kl. 14.00-16.00 haldið í húsi Samtaka atvinnulífsins Borgartúni 35, 105 Reykjavík

Ný matvælalöggjöf tekur gildi 1. mars. n.k. Kynningin er ætluð stjórnendum matvælafyrirtækja en samkvæmt skilgreiningu í löggjöfinni (Lög nr 143/2009) er matvælafyrirtæki fyrirtæki eða einstaklingur sem rekur starfsemi í tengslum við framleiðslu, vinnslu eða dreifingu matvæla á einhverju stigi, hvort sem það starfar í ágóðaskyni eður ei, og hvort sem það er einkarekið eða opinbert fyrirtæki.
Lesa meira...
 
Vannýtt tækifæri í íslenskum sjávarútvegi
Miðvikudagur, 02. Des 2009
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Sveinn Margeirsson, sviðsstjóri hjá Matís, fjalla um tækifæri í íslenskum sjávarútvegi á opnum fundi fimmtudaginn 3. des. kl. 08:30 á Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2.
Lesa meira...
 
Breyting á kauptöxtum tekur gildi 1. nóvember 2009
Föstudagur, 30. Okt 2009
Þann 1. nóvember 2009 kemur til framkvæmda síðari hluti kauptaxtabreytinga fiskvinnslufólks ofl. sem áttu að koma upphaflega til framkvæmda 1. mars 2009 skv. ákvæðum í kjarasasmningum SA og ASÍ frá 17. febrúar 2008.
Lesa meira...
 
Lifandi humar á markað í Evrópu
Fimmtudagur, 29. Okt 2009
Samtök fiskvinnslustöðva ásamt innlendum samstarfsaðilum í CrustaSea verkefninu sem er Evrópíuverkefni sautján fyrirtækja,samtaka og rannsóknarstofnana boða til fræðslufunda undir yfirskriftinni:
Lesa meira...
 
Að afloknum aðalfundi SF 2009
Mánudagur, 28. Sep 2009
Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva var haldinn á Grand Hótel v/Sigtún Reykjavík, föstudaginn 25. sept. 2009.
Lesa meira...
 
Dagskrá aðalfundar SF 2009
Mánudagur, 21. Sep 2009
Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva verður haldinn föstudaginn 25. september 2009 á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar SF 2009

 
Aðalfundur SF 2009
Mánudagur, 24. Ágú 2009
Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva verður haldinn föstudaginn 25. september nk. að Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík.
Lesa meira...
 
Búið að samþykkja framlengingu kjarasamninga
Þriðjudagur, 14. Júl 2009
Samhliða gerð stöðugleikasáttmála aðila á vinnumarkaði við stjórnvöld var gengið frá framlengingu kjarasamninga SA og ASÍ þann 25. júní sl. Með samkomulagi SA og ASÍ í lok febrúar á þessu ári var ákvæðum um breytingar á kauptöxtum sem áttu að taka gildi 1. mars sl. frestað og ákveðið að taka upp viðræður um málið og ljúka þeim fyrir lok júní 2009.
Lesa meira...
 
Sumarlokun frá 20. júlí til 4. ágúst 2009
Mánudagur, 13. Júl 2009
Skrifstofa Samtaka fiskvinnslustöðva verður lokuð frá mánudeginum 20.júlí og fram yfir verslunarhelgi og opnar aftur þriðjudaginn 4. ágúst 2009. Engu að síður verður hægt að ná í formann samtakanna Arnar Sigurmundsson í síma 822 0351 ef nauðsyn ber til á þessum tíma.
 
Ályktun stjórnar SF varðandi fyrirhugaða fyrningarleið ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi.
Þriðjudagur, 12. Maí 2009
Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva leggst eindregið gegn öllum tillögum og hugmyndum í Samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri Grænna um svokallaða fyrningarleið í sjávarútvegi og innköllun á öllum fiskveiðiheimildum á næstu tveim áratugum.
Lesa meira...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL